Svíar og Norðmenn næla strax í gull

Jonna Sundling fagnar sigrinum í dag.
Jonna Sundling fagnar sigrinum í dag. AFP

Svíar og Norðmenn voru ekki lengi að næla í gullverðlaun á heimsmeistaramótinu í norrænum greinum en fyrsti keppnisdagur var í dag. 

Fyrsta keppnisgreinin var sprettganga en HM fer fram í Oberstdorf í Þýskalandi. Joanna Sundling frá Svíþjóð sigraði í kvennaflokki. MAiken Caspersen varð önnur og Anamarjia Lampic frá Slóveníu varð þriðja. 

Gígja Björnsdóttir hafnaði í 86. sæti. 

Norðmenn gerðu sér lítið fyrir og unnu þrefalt í karlaflokki. Johannes Høsflot Klæbo varð heimsmeistari í sprettgöngu en landar hans Erik Valnes og Håvard Solås Taugbøl fengu silfur og brons. 

Isak Stianson Pedersen hafnaði í 76. sæti og Dagur Benediktsson í 86. sæti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert