Íslendingar í öðru sæti

Katla Björg Dagbjartsdóttir náði góðum árangri.
Katla Björg Dagbjartsdóttir náði góðum árangri. Ljósmynd/Skíðasamband Íslands

Katla Björg Dagbjartsdóttir, landsliðskona í alpagreinum, var að ljúka keppni í Rogla í Slóveníu í dag þar sem hún endaði í 2. sæti í svigi með 44,82 FIS-stig.

Þetta er hennar besti árangur í greininni til þessa en hún hefur verið að bæta stöðu sína á heimslista FIS á hverju móti sem hún hefur tekið þátt í að undanförnu, bæði í svigi og stórsvigi.

Katla Björg hefur verið að æfa í vetur með Lowlanders Skiracing þar sem fleiri liðsfélagar hennar hafa einnig náð góðum árangri í vetur.

Sturla Snær Snorrason hafnaði í öðru sæti með 35,59 FIS-stig í sömu grein á sama móti. 

Með þessum árangri og 4. sætinu í undankeppninni á HM í Cortina á Ítalíu þar sem hann krækti sér í 27,96 FIS-stig mun hann styrkja stöðu sína á heimslistanum.

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir náði sínum besta árangri í svigi er hún endaði í sjötta sæti með 57,80 FIS-stig. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert