Saint mun snilli hans gleymast

Leikmenn Liverpool og Chelsea minnast St Johns fyrir leik liðanna …
Leikmenn Liverpool og Chelsea minnast St Johns fyrir leik liðanna á Anfield á fimmtudaginn var. AFP

Ian St John, ein mesta goðsögnin í sparksögu Liverpool, féll frá í vikunni, 82 ára að aldri. Hans er minnst fyrir snilligáfu á velli, ósérhlífni og mikla hlýju. St John skoraði í tvígang gegn KR haustið 1964. 

Upplitið á hinu fornfræga félagi Liverpool var ekki djarft árið 1961. Þessir fimmföldu Englandsmeistarar höfðu þá setið fastir í 2. deild í sjö ár og þrátt fyrir góðan vilja ekki komist aftur upp í hóp þeirra bestu. En nýi knattspyrnustjórinn, Skotinn Bill Shankly, sem tók við liðinu í árslok 1959, hafði háleitari hugmyndir; breytti skóherberginu á Anfield sem frægt er í fundarherbergi fyrir herráðið og byrjaði að horfa til framtíðar. Kaupa þurfti nýja leikmenn og framherji og miðvörður voru efstir á óskalistanum.

Hermt er að Shankly hafi viljað fá markakónginn mikla Brian Clough frá Middlesbrough en til að bíta höfuðið af skömm Liverpool þá valdi hann Sunderland. Hver gerir svoleiðis? Sunderland, hvaða land er það, spyr nú ungviðið?

Ian St John lék með Liverpool í áratug, frá 1961 …
Ian St John lék með Liverpool í áratug, frá 1961 til 1971. Wikimedia


Það var þá sem Shankly rakst á klausu í dagblaði: Motherwell hafði sett framherja sin, Ian St John, á söluskrá. Hann var á góðum aldri, aðeins 23 ára, og hafði þegar skorað 80 mörk í 113 deildarleikjum fyrir Motherwell. Rétti maðurinn. Það var bara eitt vandamál – verðmiðinn, 37.500 sterlingspund. „Böns-o-monní“ á þeim tíma og hærra en Liverpool hafði nokkru sinni greitt fyrir leikmann. Enda stóð tekexið í stjórninni þegar Shankly knúði dyra með beiðnina. „Hvers vegna viltu eyða svo miklu fé í einn leikmann?“ spurðu menn gáttaðir. Ekki stóð á svari frá stjóranum frekar en endranær: „Við höfum ekki efni á að kaupa hann ekki!“ Bingó!

Svo sannfærður var Shankly að hann fékk Rolls Royce-bifreið eins stjórnarmannanna lánaða áður en hann hélt í innkaupaleiðangurinn til Motherwell. Gekk frá kaupunum fyrir framan nefið á Newcastle United. Það verður seint fyrirgefið.

Svo við setjum St John í samhengi þá hafði hann þurft að hafa fyrir lífinu. Fæddist í Motherwell 7. júní 1938 og hlaut nafnið John St John. Hvers vegna hann breytti skírnarnafninu í Ian liggur ekki fyrir. St John var aðeins sex ára þegar faðir hans féll frá og ólst eftir það upp hjá einstæðri móður ásamt systkinum sínum fimm. Hann vann til skamms tíma í stálsmiðju og lofaði góðu sem hnefaleikari. En knattspyrna skyldi það verða, heillin, og þar var St John sannarlega á heimavelli. Vann einu sinni það afrek að skora þrennu á aðeins 150 sekúndum fyrir Motherwell gegn Hibs.

Shankly fékk líka miðvörðinn sinn þetta sumar. Annar Skoti, Ron Yeats, kom frá Dundee United fyrir um 20.000 sterlingspund. Hann var árinu eldri en St John og umsvifalaust gerður að fyrirliða. „Maðurinn er fjall,“ sagði Shankly við blaðamenn, „farið bara inn í búningsklefa og gangið í kringum hann“.

St John og Yeats léku báðir í áratug með Liverpool og seinna sagði Shankly að koma þeirra hefði markað þáttaskil í gengi Liverpool. Upp lá leiðin, upp, upp, eins og sálin og geðið á sinni tíð.

Liverpool vann 2. deildina með yfirburðum veturinn 1961-62; hlaut átta stigum meira en Leyton Orient sem varð í öðru sæti, en á þeim tíma fengust ekki nema tvö stig fyrir sigur.
St John var ekki lengi að renna sér inn að dýpstu hjartarótum stuðningsmanna Liverpool; setti þrennu strax í fyrsta leik gegn Everton í Liverpoolbikarnum sem þá var og hét. Fyrstu deildarmörkin komu í 4:1 sigri á Sunderland. Félagi hans í framlínunni, Roger Hunt, var með hin tvö. Alls gerði St John átján mörk þennan fyrsta vetur og missti aðeins af tveimur leikjum.

Rauði herinn marseraði áfram; liðið varð í áttunda sæti fyrsta veturinn í 1. deildinni og vorið 1964 stóð það uppi sem Englandsmeistari. St John lá ekki á liði sínu þann vetur, gerði 21 mark sem var hans besti árangur á ferlinum. Samvinna þeirra Hunts var rómuð í framlínunni; þeir bættu hvor annan vel upp.

Liverpool þreytti frumraun sína í Evrópukeppni meistaraliða um haustið – á Laugardalsvellinum gegn KR. St John kom ekki við sögu í þeim leik, sem lauk með 5:0-sigri Liverpool, en í seinni leiknum á Anfield var hann á sínum stað og skoraði tvö mörk í 6:1-sigri.

Þegar Liverpool vann enska bikarinn vorið 1965 var St John hetjan; skoraði sigurmarkið gegn Leeds United með skalla í framlengingu. Annar meistaratitill fylgdi 1966. Hunt skrapp svo til Lundúna það sumar til að verða heimsmeistari með enska landsliðinu. St John lék að sjálfsögðu með því skoska, samtals 21 leik og skoraði níu mörk.

Ian St John prýddi að sjálfsögðu forsíðu leikskrár Liverpool fyrir …
Ian St John prýddi að sjálfsögðu forsíðu leikskrár Liverpool fyrir leikinn gegn Chelsea í vikunni.


Vinsæll sjónvarpsmaður

Er árin færðust yfir smokraði St John sér aftar á völlinn og að því kom að hann var ekki lengur lykilmaður í liði Shanklys. Hermt er að hann hafi áttað sig á því ein jólin þegar kalkúnninn sem hann fékk frá félaginu var í rýrari kantinum. Þeir bústnu voru fyrir leikmenn aðalliðsins. Seinasta veturinn á Anfield, 1970-71, lék St John með varaliðinu.

Liverpool átti auðvitað enn þá betra gengi að fagna á áttunda og níunda áratugnum en ekkert af því hefði gerst hefði ekki verið fyrir byltinguna á Bítlaárunum. Og Ian St John stóð þar í brjósti fylkingar. Hann lék með tveimur liðum í Suður-Afríku eftir að hann yfirgaf

Liverpool en einnig til skamms tíma með Coventry City og Tranmere Rovers, þar sem ferlinum lauk árið 1973. St John var þá orðinn 35 ára sem þótti hundgamalt á þeim tíma og til marks um það hvað kappinn var slitgóður. Hann spreytti sig á knattspyrnustjórn, bæði hjá sínu gamla félagi Motherwell og Portsmouth, en gerðist að því loknu sparkskýrandi í fjölmiðlum. Frægastur er hann fyrir sjónvarpsþáttinn Saint and Greavsie á árunum 1985 til 1992, þar sem annar kunnur markvarðahrellir, Jimmy Greaves, var honum við hlið.

Greaves var einmitt einn þeirra fjölmörgu sem minntust St Johns með mikilli hlýju eftir andlát hans í vikunni eftir langvarandi veikindi.

Það gerðu einnig Liverpoolgoðsagnir á borð við Jamie Carragher og Steven Gerrard og núverandi leikmenn eins og Andy Robertson, en St John hélt alltaf góðu sambandi við Liverpool og var einstaklega vel liðinn, svo sem Jürgen Klopp knattspyrnustjóri kom inn á í kveðju sinni: „Það er mikill heiður að hafa fengið að hitta Ian St John.“

Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Þessi grein birtist
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert