Íþróttir leyfðar á nýjan leik

Íþróttalíf hér á landi fer aftur af stað á fimmtudaginn …
Íþróttalíf hér á landi fer aftur af stað á fimmtudaginn kemur. Ljósmynd/Á​rni Torfa­son

Æfinga- og keppnisbann í íþróttum hér á landi verður afnumið á fimmtudaginn kemur.

Þetta staðfesti Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra eftir ríkisstjórnarfund í morgun.

Þá eru íþróttir heimilar öllum, bæði börnum og fullorðnum, og er nýjasta reglugerðin í samræmi við tillögur Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.

Eins og áður sagði taka tilslakanirnar gildi frá og með næsta fimmtudegi og gilda í þrjár vikur. 

Þá verða sundlaugar og líkamsræktarstöðvar aftur opnaðar en þó aðeins með 50% af þeim fjölda sem er venjulega heimilaður.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert