KA tryggði sér oddaleik

KA vann 3:1-sigur gegn Aftureldingu í dag.
KA vann 3:1-sigur gegn Aftureldingu í dag. mbl.is/Kristinn Magnússon

KA lagði Aftureldingu að velli í öðrum leik liðanna í undanúrslitum Íslandsmótsins í blaki í KA-heimilinu á Akureyri í dag.

Leiknum lauk með 3:1-sigri KA en Akureyringar byrjuðu leikinn betur og unnu fyrstu hrinuna 25:23.

Aftureldingu tókst að jafna metin í 1:1-eftir 27:25-sigur í annarri hrinu. KA vann hins vegar næstu tvær hrinur, 25:15, og fagnaði sigri í leikslok.

Afturelding vann fyrri leik liðanna að Varmá í Mosfellsbæ og staðan því 1:1 í einvíginu.

Liðin mætast í oddaleik á þriðjudaginn kemur í Mosfellsbæ en það liðið sem vinnur mætir HK í úrslitum Íslandsmótsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert