Haukar og ÍR sýndu þolendum stuðning

Leikmenn ganga inn á völlinn með skýr skilaboð.
Leikmenn ganga inn á völlinn með skýr skilaboð. Ljósmynd/Facebook

Leikmenn karlaliða Hauka og ÍR í knattspyrnu sýndu samstöðu með þolendum ofbeldis í leik þeirra á milli í dag. Haukar gengu inn á völlinn með svokallaðar „Fokk ofbeldi“ húfur og ÍR flaggaði fána forvarnarhópsins Bleika fílsins. 

Bleika fánanum var flaggað.
Bleika fánanum var flaggað.

Þá gengu liðsmenn ÍR inn á völlinn í bolum Bleika fílsins sem stendur á „Þú 'skorar' með skýru samþykki“ og „Samþykki er sexý“. 

Bleiki fíllinn þakkaði Haukum og Ír-ingum fyrir að sýna þolendum stuðning.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert