Ingvar aftur á meðal 100 bestu á heimslistanum 

Ingvar Ómarsson hjólreiðakappi.
Ingvar Ómarsson hjólreiðakappi. Ljósmynd/Hörður Ragnarsson

Atvinnuhjólreiðamaðurinn Ingvar Ómarsson gerði góða ferð til Evrópu um síðustu helgi þegar hann tók þátt í tveimur maraþonfjallahjólamótum. Ingvar stóð sig afar vel og komst aftur inn á topp 100 á heimslista karlkyns hjólreiðamanna.

Mótin tvö eru hluti af maraþonmótaröðinni hjá Alþjóðahjólreiðasambandinu. Fyrri keppnin, Roc d’Azur, fór fram á föstudaginn í Fréjus í Frakklandi. Keppnin var 84 kílómetra löng og heildarhækkun var 2.170 metrar. Ingvar var mjög framarlega meirihlutann af leiðinni en gaf aðeins eftir í lokin og endaði í 33. sæti af 142 hjólurum í meistaraflokki sem kláruðu.

Tími Ingvars var 4:18:41 en sigurvegari varð Þjóðverjinn Andreas Seewald á tímanum 3:48:28. Sá er efstur á heimslistanum í maraþon fjallahjólreiðum. Ingvar fékk 40 stig á heimslistanum fyrir þetta afrek.

Ingvar keyrði svo 500 kílómetra leið strax eftir keppni til Girona á Spáni þar sem hann keppti á sunnudaginn í La Tramun keppninni. Hún er 77 kílómetra löng og með yfir 2000 metrar hækkun og þar með talsvert erfiðari en fyrri keppnin sem Ingvar tók þátt í á föstudeginum.

Keppnin gekk öfugt miðað við fyrri keppnina en Ingvar var í vandræðum fyrri hlutann af keppninni en náði svo góðum seinni hluta þar sem hann náði mörgum hjólurum og endaði í 32. sæti af 190 hjólurum sem kláruðu í meistaraflokki. Um 40 hjólarar luku ekki keppni.

Tími Ingvars var 4:58:25 en sigurvegari varð heimamaðurinn Francesc Guerra Carretero.

Á topp 100 á þremur heimslistum

Ingvar náði í vor inn á topp 100 á heimslistanum sem er besti árangur sem Íslendingur hefur náð í hjólreiðum. Hann tók að færast niður listann eftir því sem fleiri keppnir voru haldnar erlendis sem Ingvar komst ekki í.

Árangurinn um helgina lyftir honum aftur inn á topp 100 og ekki nóg með það þá er Ingvar kominn á topp 100 á þremur heimslistum hjá Alþjóðahjólreiðasambandinu. Hann er númer 45 á heimslistanum fyrir maraþon fjallahjólreiðar, númer 63 á MTB maraþon „world series“ listanum og er svo kominn í 99. sæti í ólympískum fjallahjólreiðum.

Ingvar stefnir á fleiri keppnir í maraþonmótaröðinni í haust en næst keppir hann í Transvésubienne–Transriviera í Frakklandi þann 24. október og svo Costa Blanca Bike Race á Spáni dagana 4. - 7. nóvember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert