Sigrar hjá Elvari og Tryggva

Elvar Már er í stóru hlutverki hjá Antwerp.
Elvar Már er í stóru hlutverki hjá Antwerp. Ljósmynd/FIBA

Lið Elvar Más Friðrikssonar og Tryggva Snæs Hlinasonar unnu bæði leiki sína í Evrópubikar félagsliða í körfuknattleik í dag. 

Elvar skoraði 8 stig, gaf 5 stoðsendingar, tók 3 fráköst og stal boltanum einu sinni fyrir Antwerp sem vann gríska liðið Ionikos á útivelli 92:81. 

Zaragoza vann einnig á útivelli en liðið heimsótti Gilbao Galil til Ísrael.  Zaragoza vann 91:90 eftir framlengdan leik. Tryggvi skoraði 6 stig, varði 5 skot, tók 5 fráköst, gaf eina stoðsendingu og stal boltanum einu sinni á þeim fimmtán mínútum sem hann lék. 

Tryggvi Snær Hlinason varði fimm skot í leiknum.
Tryggvi Snær Hlinason varði fimm skot í leiknum. Ljósmynd/FIBA
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert