Landsliðið komið til Portúgals

Landsliðin eru mætt til Portúgals á Evrópumeistaramótið.
Landsliðin eru mætt til Portúgals á Evrópumeistaramótið. Ljósmynd/FSÍ

Íslenska landsliðið í hópfimleikum er mætt til Portúgals þar sem liðið tekur þátt í Evrópumeistaramótinu í hópfimleikum sem fram fer í Guimares, dagana 1.-4. desember.

Alls taka fjögur lið frá Íslandi þátt í mótinu; kvenna- og karlalið í fullorðinsflokki og stúlkna- og blandað lið í unglingaflokki.

Úrslit í unglinaflokki fara fram föstudaginn 3. desember og úrslit í fullorðinsflokki fara fram laugardaginn 4. desember.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert