Matthías krækti í silfur

Matthías Stefánsson (t.v.) með silfurverðlaunapeninginn sem hann hlaut um helgina.
Matthías Stefánsson (t.v.) með silfurverðlaunapeninginn sem hann hlaut um helgina. Ljósmynd/Júdósamband Íslands

Matthías Stefánsson nældi sér í silfurverðlaun í -90 kg flokki í U21-aldursflokki á Baltic Sea mótinu í júdó sem fór fram um helgina í Orimattila í Finnlandi.

Matthías sigraði Valter Woivalin frá Finnlandi og Alfred Velut frá Svíþjóð, báða á ippon. Matthías mætti svo Karl Baathe í úrslitaglímu, en varð að játa sig sigraðan þar.

Baltic Sea mótið er eitt það sterkasta sem er haldið á Norðurlöndum, en keppendur voru rúmlega 500 frá 13 þjóðum. Íslendingar áttu sex fulltrúa í U18 og U21-flokkum og reyndu keppendur úr síðari flokknum einnig fyrir sér í flokki fullorðinna.

Ingólfur Rögnvaldsson átti gott mót en hann var nálægt því að glíma um verðlaun á mótinu í -66 kg flokki í U21-aldursflokki. Mætti hann Pierre Vuillier frá Frakklandi í fyrstu umferð og sigraði Ingólfur á ippon. Næst mætti Ingólfur Olle Hermodsson frá Svíþjóð en laut þar í lægra haldi eftir snarpa viðureign.

Hermodsson fór áfram og stóð uppi sem sigurvegari flokksins í lok dags. Ingólfur fékk uppreisnarglímu og mætti þar Rom Hovav frá Ísrael. Ingólfur sigraði örugglega eftir að hafa skorað tvívegis. Því næst mætti hann Carl Kont, en sigurvegari þeirrar glímu myndi síðar glíma um bronsverðlaun. Kont sigraði viðureignina og tryggði sér svo bronsverðlaunin síðar um daginn.

Daníel Árnason keppti í -60 kg flokki í U21 aldursflokki. Mætti hann Mats Gerhardsen frá Noregi og sigraði þá viðureign örugglega. Næst mætti Daníel Frakkanum David Laborne þar sem Laborne hafði betur og fór því áfram. Daníel fékk uppreisnarglímu gegn Dennis Bjertnes. Daníel laut í lægra haldi eftir jafna glímu og endaði þar með í sjöunda sæti.

Aðrir íslenskir keppendur unnu ekki viðureignir að þessu sinni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert