Meistararnir úr leik eftir mikla dramatík

Tom Brady og félagar eru úr leik eftir tap gegn …
Tom Brady og félagar eru úr leik eftir tap gegn Los Angeles Rams. AFP

Tom Brady og liðsfélagar hans í Tampa Bay Buccaneers eru úr leik í úrslitakeppni bandarísku NFL-deildarinnar í amerískum fótbolta eftir tap gegn Los Angeles Rams í 8-liða úrslitum í Tampa í Flórída í gær.

Leiknum lauk með 30:27-sigri LA Rams sem leiddi 27:3 um miðjan þriðja leikhluta en Buccaneers tókst að jafna metin undir lok fjórða leikhluta. 

LA Rams skoruðu hins vegar vallarmark þegar nokkrar sekúndur voru eftir af leiknum og fögnuðu dýrmætum sigri á ríkjandi meisturum í Tampa Bay.

Leikstjórnandinn Patrick Mahomes fagnar með stuðningsmönnum Kansas City í nótt.
Leikstjórnandinn Patrick Mahomes fagnar með stuðningsmönnum Kansas City í nótt. AFP

Þá er Kansas City Chiefs einnig komið áfram í undanúrslit eftir dramatískan sigur gegn Buffalo Bills í Kansas, 42:36.

Mikið jafnfræði var með liðunum allan leikinn og þau skiptust á að skora og leiða í leiknum.

Staðan var jöfn, 36:36, eftir venjulegan leiktíma og því var gripið til framlengingar þar sem Kansas var sterkari aðilinn.

Aaron Rodgers og félagar eru úr leik.
Aaron Rodgers og félagar eru úr leik. AFP

San Francisco 49ers unnu svo þriggja stiga sigur gegn Green Bay Packers í Green Bay, 13:10.

Úrslitin voru heldur óvænt enda Aaron Rodgers, leikstjórnandi Green Bay, af mörgum talinn besti leikstjórnandi deildarinnar.

Kansas City Chiefs tekur á móti Cincinnati Bengals í undanúrslitum úrslitakeppninnar á meðan Los Angeles Rams fær San Francisco 49ers í heimsókn um næstu helgi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert