Aflýsa kappakstrinum í Rússlandi

Frá kappakstursbrautinni í Sochi.
Frá kappakstursbrautinni í Sochi. AFP

Formúlu-1 kappakstrinum sem átti að fara fram í Rússlandi í september næstkomandi hefur verið aflýst vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá Formúlu-1 í dag.

Þar sagði meðal annars „að ómögulegt sé að halda kappaksturinn í Rússlandi við núverandi kringumstæður.“

Kappaksturinn átti að fara fram þann 25. september næstkomandi í Sochi en nú er ljóst að ekkert verður af því.

Í yfirlýsingu Formúlu-1 sagði einnig að samtökin fylgdust náið með ástandinu í Úkraínu og að þau vonist eftir skjótri og friðsamlegri lausn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert