Andrea vann á brautarmeti

Andrea Kolbeinsdóttir kemur í mark á nýju brautarmeti.
Andrea Kolbeinsdóttir kemur í mark á nýju brautarmeti. mbl.is/Alfons

Snæfellsjökulshlaupið fór fram í dag og mættu 213 keppendur til leiks. Lagt var upp frá Arnarstapa, hlaupið yfir jökulháls og endað í Ólafsvík.

Andrea Kolbeinsdóttir kom fyrst í mark í kvennaflokki á nýju brautarmeti. Hún hljóp á 1:42,47 klukkutíma.

Í karlaflokki fór hinn tvítugi bandaríkjamaður Cole Nash með sigur af hólmi en hann hljóp á 1:35,23 klukkutíma. Jörundur Frímann Jónsson kom tæpum tveimur mínútum á eftir honum í mark og Snorri Björnsson varð þriðji.

Efstu menn í karlaflokki kátir.
Efstu menn í karlaflokki kátir. mbl.is/Alfons
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert