Með fullt hús eftir sigur á meisturunum

Stefán Númi, fyrir miðri mynd, með varnarmann í fanginu.
Stefán Númi, fyrir miðri mynd, með varnarmann í fanginu. Ljósmynd/Aðsend

Stefán Númi Stefánsson og liðsfélagar hans í þýska ruðningsliðinu Potsdam Royals eru enn með fullt hús stiga á toppi norðurhluta efstu deildar þar í landi eftir 36:21-útisigur á Þýskalandsmeisturum Dresden Monarchs í dag.

Potsdam-liðið hefur farið afar vel af stað í deildinni og unnið alla fimm leiki sína og skorað 249 stig og aðeins fengið 148 á sig. Stefán leikur sem sóknarlínumaður og er hans hlutverk á vellinum að vernda leikstjórnanda síns liðs.

Deild­inni er skipt í norður- og suður­hluta og fara fjög­ur efstu lið hvors hluta í átta liða úr­slit, þar sem keppt er um þýska meist­ara­titil­inn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert