Fimleikasamband Íslands hefur tilkynnt landslið kvenna og karla fyrir EM 2022. Evrópumótið í fimleikum verður haldið dagana 11.-15. ágúst í Þýskalandi. Hjónin Ferenc Kováts og Andrea Kováts-Fellner eru þjálfarar kvennaliðsins og bræðurnir Róbert Kristmannsson og Viktor Kristmannsson eru þjálfarar karlaliðsins.
Kvennalandslið Íslands skipa:
Agnes Suto – Gerpla
Guðrún Edda Min Harðardóttir – Björk
Hildur Maja Guðmundsdóttir – Gerpla
Margrét Lea Kristinsdóttir – Björk
Thelma Aðalsteinsdóttir – Gerpla
Karlalandslið Íslands skipa:
Atli Snær Valgeirsson – Gerpla
Jón Sigurður Gunnarsson – Ármann
Jónas Ingi Þórisson – Gerpla
Martin Bjarni Guðmundsson – Gerpla
Valgarð Reinhardsson – Gerpla