Einn sá sigursælasti hættur

Sturla Snær Snorrason keppti á Ólympíuleikunum í Peking í febrúar.
Sturla Snær Snorrason keppti á Ólympíuleikunum í Peking í febrúar. AFP

Sturla Snær Snorrason, landsliðsmaður í alpagreinum, hefur lagt skíðin á hilluna en hann hefur verið einn fremsti skíðamaður landsins undanfarin ár.

Frá árinu 2016 hefur Sturla Snær fjórum sinnum orðið Íslandsmeistari í svigi og tvisvar í stórsvigi, auk þess að eiga fjölmarga Íslands- og bikarmeistaratitla í unglingaflokkum.

Sturla Snær fór tvisvar á Ólympíuleikana; í Pyeongchan í Suður-Kóreu árið 2018 og í Peking í Kína fjórum árum seinna. Frá árinu 2013 tók Sturla Snær þátt í fjórum heimsmeistaramótum fullorðinna auk þess að taka þátt á tveimur heimsmeistaramótum unglinga.

Sturla Snær náði frábærum árangri í tvígang í undankeppni fyrir HM fullorðinna, annars vegar árið 2017 þegar hann náði 2. sæti í stórsvigi og hinsvegar árið 2021 þegar hann endaði í 4. sæti í sviginu.

Sturla Snær náði sínum bestu FIS stigum á FIS-móti í Val Palot á Ítalíu þegar hann endaði í 3. sæti og fékk 17.79 FIS-stig. Hann vann tvö alþjóðlega FIS mót á erlendri grundu og varð hann samanlagt tíu sinnum á verðlaunapalli á slíkum mótum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert