SA vann SR örugglega

Gunnborg Jóhannsdóttir (önnur frá hægri), skoraði tvívegis fyrir SA í …
Gunnborg Jóhannsdóttir (önnur frá hægri), skoraði tvívegis fyrir SA í dag. Ljósmynd/Kristín Hallgrímsdóttir

SA vann stóran sigur á SR, 7:0, á Íslandsmóti kvenna í íshokkí, Hertz-deildinni, í Skautahöllinni á Akureyri í dag.

Gunnborg Jóhannsdóttir skoraði tvívegis fyrir heimakonur og þær Berglind Leifsdóttir, Eva Karvelsdóttir, Herborg Geirsdóttir og Hilma Bergsdóttir skoruðu eitt mark hver.

SA hefur unnið alla níu leiki sína í deildinni og eru með níu stiga forskot á Fjölni í öðru sætinu. SR situr á botni deildarinnar án stiga.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert