Pérez byrjar fremstur eftir að bíll Verstappens bilaði

Sergio Pérez sáttur að lokinni tímatöku dagsins.
Sergio Pérez sáttur að lokinni tímatöku dagsins. AFP/Ben Stansall

Mexíkóinn Sergio Pérez byrjar á ráspól í Formúlu 1-kappakstrinum í Jeddah í Sádí Arabíu á morgun.

Pérez var hraðastur í tímatökunni í dag á Red Bull-bílnum sínum en liðsfélagi hans, Max Verstappen, sem var hraðastur á æfingum í gær varð að hætta keppni í annarri tímatöku vegna bilunnar í bílnum.

Charles Leclerc náði næst besta tímanum í tímatökunni í dag en fær tíu sæta refsingu á morgun. Spánverjinn Fernando Alonso mun því byrja annar á morgun. George Russell mun byrja þriðji og Carlos Sainz fjórði en Lewis Hamilton náði sér ekki á strik og byrjar áttundi. 

Verstappen mun byrja 15. og verður áhugavert að sjá hversu mikið hann nær að vinna sig upp á morgun.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert