Fékk brons í Austurríki

Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir á pallinum í Austurríki.
Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir á pallinum í Austurríki. Ljósmynd/Skíðasamband Íslands

Skíðakonan Hólmfríður Dóra Friðgeirsdóttir hafnaði í þriðja sæti í bruni á alþjóðlegu FIS-stigamóti í Petzen í Austurríki á dögunum.

Hólmfríður Dóra var einungis 1,75 sekúndum á eftir Ilku Stuhec frá Slóveníu sem fagnaði sigri og þá var hún aðeins 0,21 sekúndu á eftir Maryan Gasience-Daniel frá Póllandi sem varð önnur.

Stuhec frá Slóveníu hefur náð bestum árangri allra á árinu þegar horft er til FIS-stiga sem gerir árangur Hólmfríðar enn þá athyglisverðari.

Hólmfríður var á meðal keppenda á Ólympíuleikunum í Peking árið 2022 þar sem hún keppti í svigi, stórsvigi og risasvigi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert