Katrín Tanja byrjar vel

Katrín Tanja Davíðsdóttir byrjar vel á undanúrslitamóti fyrir heimsleikana.
Katrín Tanja Davíðsdóttir byrjar vel á undanúrslitamóti fyrir heimsleikana. Ljósmynd/Instagram

Katrín Tanja Davíðsdóttir er í sjötta sæti eftir aðra grein í undanúrslitamóti fyrir heimsleikana í CrossFit.

Katrín tekur þessa dagana þátt á sterku undanúrslitamóti sem fram fer í Pasadena í Bandaríkjunum. Keppt er í sjö greinum og munu tíu efstu konurnar vinna sér þáttökurétt á heimsleikunum í CrossFit.

Eftir fyrstu grein var Katrín í 9. sæti mótsins en góður árangur í annarri grein skilaði henni upp í 6. sæti. Katrín endaði greinina í 23. sæti af 60 keppendum.

Tveimur greinum er lokið og munu tvær greinar fara fram seinna í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert