„Íslendingar eru rosalega kappsamt, eljusamt og duglegt fólk,“ sagði Vésteinn Hafsteinsson, afreksstjóri Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, í Dagmálum.
Vésteinn, sem er 63 ára gamall, var ráðinn afreksstjóri ÍSÍ í janúar á síðasta ári eftir afar farsælan feril í íþróttum, fyrst sem kringlukastari og síðar sem afreksþjálfari.
Vésteinn segir mikinn hraða einkenna íslenskt samfélag og að margir séu að kikna undan álaginu.
„Við rjúkum af stað í að gera eitthvað og ég tek hatt minn ofan fyrir þessu, Svíar eru ekki svona, en svo komumst við ekki yfir það,“ sagði Vésteinn.
„Það er ofboðslega mikil pressa í þessu nútímasamfélagi og það er mjög óhagstætt fyrir afreksíþróttafólk því við erum á kafi í öllu og engu.
Það er endalaus spenna í þjóðfélaginu og það er allt svart og hvítt. Hinn heilagi sannleikur en lífið er bara ekki þannig. Það er bara eðlilegt að sofa átta til tíu tíma á dag og að borða sex máltíðir á dag, eitthvað sem enginn hefur tíma fyrir í dag.
Samfélasgmiðlarnir gera það að verkum unga fólkið í dag er fætt inn í símann og þau lifa í gegnum símann sinn. Það er allt í beinni og þetta er svakaleg pressa. Unga fólkið ræður bara ekki við þetta!“ sagði Vésteinn meðal annars.
Viðtalið við Véstein í heild sinni má nálgast með því að smella hér eða á hlekkinn hér fyrir ofan.