Frjálsíþróttamaðurinn Baldvin Þór Magnússon bætti eigið Íslandsmet í 3000 metra hlaupi innanhúss um tvær sekúndur í Sheffield í dag.
Baldvin vann hlaupið af miklu öryggi á tímanum 7:45,11 mínútum en fyrra Íslandsmet hans var 7:47:51 mínútur sem hann hljóp í Bandaríkjunum í febrúar 2022.
Hann keppir á Reykjavíkurleikunum, RIG, mánudaginn 27. janúar.