Móðir Eyglóar veitti henni gullverðlaunin

Eygló Fanndal Sturludóttir glöð með gullverðlaunin í dag.
Eygló Fanndal Sturludóttir glöð með gullverðlaunin í dag. Ljósmynd/Gregor Winter

Eygló Fanndal Sturludóttir varð í dag Evrópumeistari í -71 kg flokki í ólympískum lyftingum í Moldóvu. Skrifaði hún nafn sitt í sögubækurnar því hún er fyrsti íslenski Evrópumeistarinn í fullorðinsflokki.

Harpa Þorláksdóttir, formaður Lyftingasambands Íslands og móðir Eyglóar, veitti henni gullverðlaunin eftir keppnina því hún var á mótinu fyrir hönd íslenska sambandsins.

Féllust mæðgurnar eðlilega í innilega faðma við tilefnið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert