Hefði fengið 20 ára bann og verið svipt titlunum

Serena Williams.
Serena Williams. AFP

„Ef ég hefði verið uppvís að því að brjóta lyfjareglur tvívegis, hefði ég fengið 20 ára bann og verið svipt titlunum mínum.“

Þetta segir tennisdrottningin Serena Williams í samtali við tímaritið Time í tilefni af þriggja mánaða banni Ítalans Jannik Sinner, sem var uppvís að því að brjóta reglur Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunarinnar í tvígang á síðasta ári.

Fimm lyfjapróf á hálfu ári

Serena, sem vann 23 risamót á farsælum ferli sínum kvartaði yfir fjölda lyfjaprófa sem hún var látin gangast undir árið 2018. Þá hafði hún verið tekni í fimm lyfjapróf á hálfu ári, helmingi fleiri en keppinautar hennar.

„Ég elska Sinner og hvernig hann spilar leikinn. Hann er frábær fyrir íþróttina. Ég vil ekki draga neinn niður og tennisíþróttin þarf á honum að halda,“ segir Williams.

Sinner sigraði á Opna ástralska mótinu í janúar og hreyfði engum mótmælum þegar hann var dæmdur í þriggja mánaða bann í febrúar.

Alþjóða lyfjaeftirlitsstofnunin vildi dæma Sinner í allt að tveggja ára bann.

Williams segir í hálfkæringi í samtali við Time að hefði hún verið uppvís að sömu brotum hefði hún jafnvel verið dæmd til fangelsisvistar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert