Eygló Fanndal Sturludóttir varð á fimmtudag fyrsti íslenski Evrópumeistarinn í ólympískum lyftingum er hún bar sigur úr býtum í -71 kg flokki á Evrópumótinu í Kisíná, höfuðborg Moldóvu.
Eygló fékk gull í jafnhendingu er hún lyfti mest 135 kílóum og varð í öðru sæti í snörun með 109 kíló. Samanlagt lyfti hún 244 kílóum og fagnaði sigri í samanlögðu. Allt eru þetta bæði Íslands- og Norðurlandamet.
„Ég er ótrúlega ánægð og stolt. Ég er enn að ná mér niður á jörðina. Það er mikið í gangi og maður er alveg á milljón að átta sig á þessu öllu,“ sagði Eygló í samtali við Morgunblaðið.
Hún er sérstaklega stolt af því að vera fyrsti Íslendingurinn sem nær árangri sem þessum á Evrópumóti fullorðinna.
„Ég er ótrúlega stolt. Það er svo gaman að fá að vera hluti af þessu ferðalagi og að upplifa það að brjóta blað í íslenskri lyftingasögu. Ég er enn að taka þetta allt inn,“ sagði hún.
Eygló vann eftir mikla og harða keppni við Zarinu Gosalovu. Hún átti ekki endilega von á að sigra þá rússnesku, sem hefur ekki fengið að keppa á undanförnum mótum. Gosalova fékk hins vegar keppnisrétt á EM gegn því að keppa ekki formlega fyrir Rússland.
„Þetta kom mér aðeins á óvart. Maður fór inn í þetta mót til að vinna en það kom mér samt á óvart að það skyldi takast. Það var ein frá Rússlandi og önnur frá Hvíta-Rússlandi sem hafa verið í banni og ég var ekki alveg viss hvað þær gætu gert á þessu móti. Það voru margir sem spáðu sigri þeirrar rússnesku,“ útskýrði Eygló.
Viðtalið í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag.