Ver Boston titilinn?

Jayson Tatum og félagar hjá Boston freista þess að verja …
Jayson Tatum og félagar hjá Boston freista þess að verja meistaratitilinn í NBA-deildinni. AFP/Winslow Townson

Deildakeppninni í NBA er nú loksins lokið og getur NBA-áhugafólk nú einbeitt sér að „viðskiptahlið“ keppnistímabilsins eins og þeir kalla það hér vestra.

Umspilið svokallaða fór fram í vikunni, en úrslitakeppnin sjálf hefst í dag með leik Indiana og Milwaukee klukkan 17.

Óvenjumiklar sveiflur voru hjá liðum sem talin voru líkleg í toppbaráttuna í ár – sérstaklega í Vesturdeildinni – þar sem bæði Los Angeles-liðin, Denver Nuggets, Minnesota Timberwolves, Dallas Mavericks og Golden State Warriors voru inn og út úr úrslitasætum alla keppnina. Í Austurdeildinni gengu hlutirnir hins vegar eins og spáð var, þótt slakt gengi Philadelphia og Milwaukee hafi komið á óvart.

Þegar litið er á gengi liðanna í deildakeppninni er staðan samt sem áður nokkuð skýr. Meistarar Boston Celtics og Cleveland Cavaliers eru yfirburðalið í Austurdeildinni og annað hvort þessara liða mun komast í lokaúrslitin í júní. Þar eru engin önnur lið sem ættu að valda usla.

Vestanmegin gengur allt út á OKC, OKC, OKC eins og ég hef sagt við vini mína hér vestra allt keppnistímabilið. Oklahoma City Thunder er langbesta liðið í Vesturdeildinni og var alla deildakeppnina.

Það á hins vegar eftir að spila leikina í úrslitakeppninni og ef sagan segir okkur eitthvað getur allt gerst þar.

Oklahoma með yfirburði

Fyrir fram var Oklahoma City spáð góðu gengi í deildakeppninni í þessum pistlum í október, en eins og margir aðrir svokallaðir sérfræðingar hélt maður að Thunder-liðið væri kannski eitt ár enn frá því að verða talið líklegasta meirstaraefnið. Hafði víst eitthvað með reynslu að gera samanborið við önnur toppliðin vestanmegin.

Það var augljóst frá byrjun deildakeppninnar að allar slíkar hugsanir voru rangar. Með Shai Gilgeous-Alexander í broddi fylkingar tók Thunder toppsætið strax föstu taki og þegar upp var staðið hafði liðið unnið sextán leikjum fleiri en næsta lið, en slíkir yfirburðir eru venjulega saga til næsta bæjar í sögu deildarinnar.

Greinin í heild sinni er í Morgunblaðinu í dag.

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert