Arnar Davíð Jónsson vann Opna Eskilstuna-mótið í keilu um helgina en hann vann Norðmanninn Henrik Larsen í æsispennandi úrslitaleik, 555:554.
Hann vann Svíann Joachim Karlsson í átta liða úrslitum, 700:617, og Englendinginn Dan Harding, 632:567, í undanúrslitum.
Skorið var mun lægra í úrslitaleiknum og Arnar ræddi við sænska keilusambandið eftir keppnina.
„Ég veit ekki hvers vegna við áttum í þessum erfiðleikum í úrslitaleiknum. Um tíma hugsaði ég að þetta væri ekki minn dagur en sem betur fer er ég þrjóskur og gefst aldrei upp.
Með sigrinum er Arnar búinn að tryggja sér sæti á hinni sterku World Series of Bowling-mótaröð, sem fram fer í Bandaríkjunum.