Nýhætt í fótbolta og valdi blakið

Sigrún Marta Jónsdóttir í leiknum í kvöld.
Sigrún Marta Jónsdóttir í leiknum í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Sigrún Marta Jónsdóttir er 19 ára leikmaður blakliðs Völsungs á Húsavík. Völsungur hefur verið með á Íslandsmótinu í nokkur ár og hefur verið mikill stígandi í gengi liðsins.

Í kvöld urðu Völsungar að gera sér silfurverðlaunin á Íslandsmótinu að góðu eftir tap gegn ógnarsterku liði KA. Völsungur var einnig í 2. sæti í deildarkeppninni. Sigrún Marta kom í viðtal hjá mbl.is eftir leikinn gegn KA í kvöld.

Miðað við gengi Völsungs síðustu ár og stígandann þá hljótið þið að ætla ykkur titil á næsta tímabili.

„Íslenski kjarninn í liðinu er líklega að fara frá Húsavík. Við elstu stelpurnar erum allar á leiðinni í skóla held ég. Það verður því ekki alveg sama lið á næsta ári. Vonandi getum við einhvern tíma komið aftur og unnið titil,“ sagði hún.

Það er erfitt að byggja upp lið í minni bæjunum úti á landi þegar leikmenn fara úr bænum fyrir tvítugt.

„Við þurfum eiginlega alltaf að byggja upp nýtt lið. Árangur okkar er frábær miðað við það. Ég er einmitt að fara í nám suður og vinn þá varla titil með Völsungi á næsta ári,“ sagði Sigrún Marta.

Leikmenn og þjálfarar Völsungs fagna góðum árangri á tímabilinu.
Leikmenn og þjálfarar Völsungs fagna góðum árangri á tímabilinu. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Hvernig hefur verið að taka þátt í þessari uppbyggingu liðsins síðustu ár? Nú ert þú borin og barnfædd á Húsavík og með Völsungsblóð í æðum.

„Þetta hefur verið frábært. Við erum búnar að vera að æfa fjórar saman í næstum tíu ár. Það hefði verið geggjað að enda þetta í fyrsta sæti en við verðum að sætta okkur við annað sætið.

Vonandi getum við spilað saman aftur seinna og þá vinnum við. Þrátt fyrir allt þá var þetta mjög gaman. Það er gaman að spila með uppeldisfélaginu sínu. Ég er nýhætt í fótbolta en valdi blakið af því að það er skemmtilegasta íþróttagreinin,“ sagði hún.

Það er mjög gaman að sjá einmitt fleiri lið utan af landi koma inn í blakdeildirnar með sterk lið eins og t.d. Vestri á Ísafirði og Hamar í Hveragerði. Það er vel hægt að byggja upp góð lið úti á landi.

„Það þarf ákveðinn grunn. Við erum búnar að vera fjórar saman; ég, Heiðdís, Sigrún og Kristey. Við vorum ógeðslega gott lið og með góðan kjarna en nú koma bara aðrar í staðinn,“ sagði Sigrún Marta.

Nú spilar þú stöðu frelsingja. Ertu búin að vera í henni lengi?

„Nei. Ég byrjaði í henni fyrir þremur árum, langar mig að segja. Ég var svo lítil að ég náði ekki nógu hátt upp,“ bætti hún við skellihlæjandi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert