„Þetta byrjar allt í yngri flokkunum“

Leikmenn og þjálfarar KA fagna Íslandsmeistaratitlinum í kvöld.
Leikmenn og þjálfarar KA fagna Íslandsmeistaratitlinum í kvöld. Ljósmynd/Egill Bjarni Friðjónsson

Arnrún Eik Guðmundsdóttir er ein úr Íslandsmeistaraliði KA í blaki. Hún spilaði kornung með meistaraflokki fyrir einhverjum árum síðan en er nú aftur komin á fullt með KA eftir nám erlendis og krossbandaslit á síðasta tímabili.

Arnrún Eik er algjör lykilleikmaður og spilar stöðu frelsingja. Hún var að sjálfsögðu kampakát í kvöld eftir að KA hafði unnið Völsung 3:1 og tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn.

„Tímabilið í fyrra var ekki nógu skemmtilegt fyrir mig þar sem ég gat ekkert spilað eftir áramót vegna krossbandaslitsins. Þetta var miklu betra og skemmtilegra. Það er geggjað að vera komin aftur heim og spila með uppeldisfélaginu.

Ég er eiginlega búin að spila allar stöður á ferlinum, allt nema miðjuna. Nú er ég frelsingi og kann mjög vel við það. Þetta er uppáhalds staðan mín,“ sagði Arnrún Eik í samtali við mbl.is eftir leik.

Ég man vel eftir þér fyrir svona tíu árum í KA-liðinu. Þá gekk nú ekki alveg svona vel.

„Það var aðeins öðruvísi. Eftir að Paula og Mateo komu til KA þá hefur verið mikill uppgangur og blakið á Akureyri hefur gjörbreyst,“ sagði hún.

Nú þurfti að gera hlé á viðtalinu þar sem Arnrúnu mátti ekki vanta á liðsmyndina með bikaraflota tímabilsins. Það voru fimm bikarar með á myndinni og þurfti sérfræðing til að raða þeim upp.

Eftir langa mæðu var hægt að halda áfram.

„Krakkablakið hefur skilað inn fullt, fullt af iðkendum og KA er að búa til fullt af ungum leikmönnum sem fá tækifæri í meistaraflokki. Þetta byrjar allt í yngri flokkunum og það er ekki hægt að byggja upp almennilegt lið nema að hafa góða leikmenn þaðan sem mynda kjarnann í meistaraflokki. Svo má tína inn utanaðkomandi leikmenn til að styrkja liðið,“ útskýrði Arnrún Eik.

Er KA búið að finna töfraformúluna?

„Við vinnum ógeðslega vel, æfum mikið og erum með sterka liðsheild. Það er það sem skilar okkur þessum árangri,“ sagði hún

Þú heldur væntanlega áfram eitthvað lengur.

„Já, já, ekki spurning“ sagði Arnrún Eik að skilnaði.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert