Vignir Vatnar Stefánsson, stórmeistari í skák, gerði sér lítið fyrir og hafði betur gegn norska stórmeistaranum Magnusi Carlsen í netskák í gærkvöldi.
Hinn 22 ára gamli Vignir Vatnar og Carlsen mættust í Titled Tuesday skákmótaröðinni sem Chess.com stendur fyrir á þriðjudögum hverrar viku.
Carlsen er einn besti skákmaður heims og er Vignir Vatnar fyrsti Íslendingurinn sem hefur betur gegn honum frá árinu 2011, en Carlsen vann sinn fyrsta heimsmeistaratitil árið 2013.
Heimsmeistaratitlarnir eru orðnir fimm hjá Norðmanninum en Vignir Vatnar er yngsti íslenski stórmeistarinn í skák, sem hann afrekaði fyrir tveimur árum.