Spánverjinn Carlos Alcaraz, sem er þriðji á heimslistanum, hefur dregið sig úr leik á Opna tennismótinu í Madrid vegna meiðsla.
Hann hefur unnið mótið tvisvar en getur ekki tekið þátt vegna meiðsla sem hann varð fyrir í tapleik gegn Holger Rune í Barcelona síðastiðinn sunnudag.
Alcarazer er 21 árs gamall og segir meiðslin ekki alvarleg.
Hann á næst að spila á móti í Róm 7. maí og Opna franska meistaramótið er svo 25. maí en hann er ríkjandi meistari þar.