Eygló heiðruð vegna Evrópumeistaratitilsins (myndir)

Eygló ræðir við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands
Eygló ræðir við Höllu Tómasdóttur forseta Íslands mbl.is/Karítas

Lyftingakonan Eygló Fanndal Sturludóttir var í gær heiðruð fyrir afrek sitt í síðustu viku þegar hún varð Evrópumeistari kvenna í -71 kg flokki í ólympískum lyftingum. Hún varð þar með fyrst allra Íslendinga Evrópumeistari í fullorðinsflokki í þessari íþrótt.

Á Evrópumótinu í Moldóvu lyfti Eygló 109 kílóum í snörun og 135 kílóum í jafnhendingu og samtals því 244 kílóum og bætti eigið Íslandsmet í öllum þremur greinunum.

Lyftingasamband Íslands hélt móttöku fyrir Eygló í Íþróttamiðstöðinni í Laugardal í gær þar sem Halla Tómasdóttir forseti Íslands, Vésteinn Hafsteinsson afreksstjóri ÍSÍ, Lárus Blöndal forseti ÍSÍ, Óskar Ármannsson frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, og Harpa Þorláksdóttir, formaður Lyftingasambands Íslands og móðir Eyglóar, fluttu ávörp henni til heiðurs.

Eygló er aðeins 23 ára gömul og er nýkomin upp úr aldursflokki U23 ára þar sem hún varð tvívegis Evrópumeistari.

Karítas Sveina Guðjónsdóttir ljósmyndari Morgunblaðsins og mbl.is tók meðfylgjandi myndir í móttökunni:

Eygló Fanndal Sturludóttir með veglega blómvendi sem henni voru afhentir …
Eygló Fanndal Sturludóttir með veglega blómvendi sem henni voru afhentir í móttökunni. mbl.is/Karítas
Halla Tómasdóttir forseti Íslands faðmar Eygló Fanndal Sturludóttur nýkrýndan Evrópumeistara …
Halla Tómasdóttir forseti Íslands faðmar Eygló Fanndal Sturludóttur nýkrýndan Evrópumeistara í móttökunni í gær. mbl.is/Karítas
Óskar Ármannsson frá mennta- og barnamálaráðuneytinu óskar Eygló til hamingju
Óskar Ármannsson frá mennta- og barnamálaráðuneytinu óskar Eygló til hamingju mbl.is/Karítas
Vésteinn Hafsteinsson afreksstjóri ÍSÍ í ræðustóli.
Vésteinn Hafsteinsson afreksstjóri ÍSÍ í ræðustóli. mbl.is/Karítas
Lárus Blöndal forseti ÍSÍ í ræðustóli.
Lárus Blöndal forseti ÍSÍ í ræðustóli. mbl.is/Karítas
Harpa Þorláksdóttir, formaður Lyftingasambands Íslands og móðir Eyglóar, í ræðustóli.
Harpa Þorláksdóttir, formaður Lyftingasambands Íslands og móðir Eyglóar, í ræðustóli. mbl.is/Karítas
Eygló ávarpar samkomuna sjálf.
Eygló ávarpar samkomuna sjálf. mbl.is/Karítas
Eygló ásamt Birni Skúlasyni, eiginmanni forseta Íslands.
Eygló ásamt Birni Skúlasyni, eiginmanni forseta Íslands. mbl.is/Karítas
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert