Luke Littler, heimsmeistari í pílukasti, fékk óblíðar móttökur hjá áhorfendum í Liverpool þegar hann mætti Michael van Gerwen í átta liða úrslitum 12. umferðar úrvalsdeildarinnar í íþróttinni í gærkvöldi.
Littler, sem er aðeins 18 ára gamall og yngsti heimsmeistari í sögu pílukasts, vissi hverju við mátti búast enda skrifaði hann á samfélagsmiðlum á miðvikudag: „Komið bara með baulið Liverpool.“
Hann er harður stuðningsmaður Manchester United og gerði því ráð fyrir slíkum móttökum í Liverpool. Littler byrjaði frábærlega og komst í 4:0 gegn van Gerwen en glutraði niður forskoti sínu og tapaði að lokum 6:5.
Littler er þrátt fyrir tapið á meðal átta efstu í úrvalsdeildinni og kemst þar af leiðandi að öllum líkindum í átta manna úrslit deildarinnar.