Valdimar býður sig fram til forseta ÍSÍ

Valdimar Leó Friðriksson.
Valdimar Leó Friðriksson. Ljósmynd/Aðsend

Valdimar Leó Friðriksson, stjórnarmaður í framkvæmdastjórn Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands, hefur ákveðið að bjóða sig fram til forseta ÍSÍ.

Í tilkynningu segir að Valdimar leggi áherslu á aukna samvinnu innan íþróttahreyfingarinnar, aukið upplýsingastreymi þvert á félög og landssvæði og meira samtal og betri fjárstuðning frá ríki og sveitarfélögum við íþróttafélög um allt land.

Hann er sá fjórði sem tilkynnir um framboð sitt til forseta ÍSÍ en áður höfðu Willum Þór Þórsson, Olga Bjarnadóttir og Brynjar Karl Sigurðsson staðfest framboð.

Starfað innan hreyfingarinnar í áratugi

Í tilkynningunni segir enn fremur um Valdimar:

„Valdimar hefur starfað innan íþróttahreyfingarinnar í áratugi og verið virkur þátttakandi á öllum stjórnsýslustigum hennar, setið í foreldraráði, verið knattspyrnudómari, vallarstjóri og framkvæmdastjóri knattspyrnudeildar Aftureldingar í Mosfellsbæ.

Auk þess hefur hann verið formaður handknattleiksfélags ÍA, framkvæmdastjóri aðalstjórnar Aftureldingar í 11 ár, framkvæmdastjóri Ungmennasambands Eyjafjarðar (UMSE) og formaður Ungmennasambands Kjalarnesþings (UMSK) í 20 ár.

Valdimar hefur síðustu ár verið framkvæmdastjóri Skautasambandsins, Borðtennissambandsins og Taekwondosambandsins.

Valdimar hefur setið í mörgum nefndum fyrir ÍSÍ og UMFÍ, þar á meðal í Ferðasjóði íþróttahreyfingarinnar, sem hann átti stóran þátt í að koma á laggirnar ásamt Jóhanni Torfasyni. Valdimar kom jafnframt sem formaður UMSK að stofnun Skólahreystis fyrir 20 árum ásamt Andrési Guðmundssyni.

Valdimar hefur skapað sér víðtæka þekkingu innan hreyfingarinnar bæði sem starfsmaður og sjálfboðaliði. Þá þykir hann liðtækur fundarstjóri og hefur verið leitað til hans til að stýra yfir 80 aðalfundum og ársþingum félaga í íþróttahreyfingunni.“

Valdimar Leó sat þá á Alþingi frá 2005 til 2007 fyrir Samfylkinguna, utan flokka og Frjálslynda flokkinn. Auk þess var hann varaþingmaður fyrir Samfylkinguna frá 2003 til 2005.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert