Skoruðu átta mörk gegn Búlgörum á HM

Unnar Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Ísland gegn Búlgaríu í …
Unnar Rúnarsson skoraði tvö mörk fyrir Ísland gegn Búlgaríu í morgun. Ljósmynd/Hafsteinn Snær Þorsteinsson

Ísland vann góðan sigur á Búlgaríu í morgun, 8:4, í annarri umferð heimsmeistaramóts karla í íshokkí en 2. deild B er leikin í Dunedin á Nýja-Sjálandi.

Íslenska liðið er því með þrjú stig eftir tvo leiki en það tapaði fyrir öflugu liði Georgíu, 4:0, í fyrstu umferðinni í gær.

Grunnurinn að sigrinum var lagður á tveggja mínútna kafla undir lok fyrsta leikhluta þefgar íslenska liðið skoraði fjögur mörk gegn einu og staðan var 5:1 að leikhlutanum loknum.

Jóhann Már Leifsson, Unnar Rúnarsson, Hafþór Sigrúnarson, Uni Blöndal og Kristján Jóhannesson skoruðu mörkin.

Ísland komst síðan í 6:1 þegar Hafþór bætti við sínu öðru marki en Búlgarir komu sér inn í leikinn með þremur mörkum á fjórum mínútum seint í öðrum leikhluta og staðan var skyndilega orðin 6:4.

Viktor Mojzyszek og Unnar skoruðu síðan tvívegis á lokakafla þriðja leikhluta og gulltryggðu íslenskan sigur.

Í hinum leikjum dagsins vann Georgía sigur á Nýja-Sjálandi, 4:0, og Taívan vann Taíland, 7:3.

Georgía er því með 6 stig, Taívan 3, Ísland 3, Nýja-Sjáland 3, Búlgaría 3 og Taíland ekkert.

Ísland mætir næst Taívan í þriðju umferðinni á miðvikudaginn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert