Egill Blöndal frá Selfossi varð á sunnudaginn Íslandsmeistari í júdó í níunda skipti en Íslandsmeistaramótið fór þá fram í Laugardalshöllinni.
Egill bar sigur úr býtum í +100 kg flokki eftir hörkuviðureign við Kjartan Hreiðarsson úr Júdófélagi Reykjavíkur sem fékk silfurverðlaunin. Sigurður Hjaltason frá Selfossi endaði í þriðja sæti. Þetta er fyrsti sigur Egils í +100 kg flokknum.
Weronioka Kommendera varð tvöfaldur Íslandsmeistari en hún vann bæði -63 kg flokk og opinn flokk kvenna.
Aðalsteinn Björnsson, sem fékk silfrið í opnum flokki karla í fyrra eftir baráttu við félaga sinn Skarphéðinn Hjaltason, sigraði að þessu sinni og lagði Damian Troianschi að velli í æsispennandi viðureign. Damian hafði áður sigrað Aðalstein í úrslitum í -90 kg flokki.
Aðalsteinn er aðeins 18 ára gamall og er sá yngsti sem hefur orðið Íslandsmeistari í opnum flokki karla.
Eyja Viborg, Heiðrún Pálsdóttir, Damian Troianschi, Gylfi Edduson og Mikael Ísaksson urðu öll Íslandsmeistarar í fyrsta skipti.
Keppendur á mótinu voru 43 frá sex júdófélögum og keppt var í sjö flokkum karla og fjórum flokkum kvenna.
Úrslit á mótinu urðu sem hér segir:
Karlar -66:
1. Janusz Komendera JR
2. Orri Helgason JR
Karlar -73:
1. Gylfi Edduson Selfossi
2. Daron Hancock JR
3. Jónas Guðmundsson JR
Karlar -81:
1. Mikael Ísaksson JR
2. Böðvar Arnarsson JS
3. Gunnar Tryggvason JR
Karlar -90:
1. Damian Troianschi JR
2. Aðalsteinn Björnsson JR
3. Logi Haraldsson JR
Karlar -100:
1. Skarphéðinn Hjaltason JR
2. Birgir Arngrímsson KA
3. Heully Dantas JR
Karlar +100:
1. Egill Blöndal Selfossi
2. Kjartan Hreiðarsson JR
3. Sigurður Hjaltason Selfossi
Karlar Opinn:
1. Aðalsteinn Björnsson JR
2. Damian Troianschi JR
3. Birgir Arngrímsson KA
3. Kjartan Hreiðarsson JR
Konur -57
1. Eyja Viborg Ármanni
2. Emma Thueringer JR
Konur -63:
1. Weronika Komendera JR
2. Agla Ólafsdóttir JS
3. Þórdís Steinþórsdóttir JRB
Konur +78:
1. Heiðrún Pálsdóttir Selfossi
2. Íris Ragnarsdóttir JS
Konur Opinn:
1. Weronika Komendera JR
2. Emma Thueringer JR