Spænski hjólreiðamaðurinn Mikel Landa varð fyrsti keppandinn til að hætta í Giro d’Italia-mótinu eftir að hafa lent í alvarlegu slysi í fyrsta hluta keppninnar á milli Durrës og Tirana í Albaníu í dag.
Landa missti stjórn á hjóli sínu og fór út af veginum og lenti næstum því á ljósastaur.
Landa var í kjölfarið fluttur upp á sjúkrahús í Albaníu.
Spánverjinn var með háar væntingar fyrir keppnina en hann hefur áður náð á verðlaunapall í Giro d’Italia, árin 2015 og 2022.