Góður árangur Íslands á HM

Íslenska kvennalandsliðið fagnaði góðum árangri.
Íslenska kvennalandsliðið fagnaði góðum árangri. Ljósmynd/IFF

Íslensku kvenna- og karlalandsliðin í bandý gerðu gott mót á heimsmeistaramótinu sem fram fór í Sviss um síðastliðna helgi. 

Karlamegin voru 29 þjóðir skráðar til leiks og kvennamegin 21 þjóð en þetta er í annað sinn sem alþjóðasambandið í bandý heldur mótið. 

Kvennalandsliðið komst í undanúrslit keppninnar eftir sigur á Frökkum og í kjölfarið Kanada. Í undanúrslitum mætti Ísland hins vegar Ungverjalandi sem vann, 4:1. 

Karlalandsliðið komst upp úr A-riðli og í átta liða úrslitin en tapaði þar gegn sterku liði Slóveníu. 

Kvennalandsliðið var að spila opinbera leiki í annað skipti í sögunni enda var liðið stofnað á síðasta ári. Íþróttin er tiltölulega ný af nálinni hérlendis í stóra samhenginu. Uppistaðan í íslensku liðunum eru leikmenn frá HK í Kópavogi en þar æfa börn, unglingar og fullorðnir bandý. Nokkrir leikmenn íslensku liðanna spila svo með félagsliðum í Svíþjóð. 

Matthías Rúnarsson, markmaður, og Andreas Stefansson stjörnuleikmaður Íslands fagna góðri …
Matthías Rúnarsson, markmaður, og Andreas Stefansson stjörnuleikmaður Íslands fagna góðri vörslu. Ljósmynd/IFF
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert