Lilja Katrín Gunnarsdóttir og Thelma Aðalsteinsdóttir eru báðar komnar í úrslit á heimsbikarmóti í áhaldafimleikum sem stendur yfir í Varna í Búlgaríu.
Lilja er komin í úrslit í stökki, á sínu fyrsta heimsbikarmóti, eftir tvö frábær stökk í undanúrslitunum, og einnig í gólfæfingum.
Þá var hún hársbreidd frá því að komast líka í úrslitin á tvíslá en þar verður hún fyrsti varamaður. Í keppni á slá hafnaði Lilja í tólfta sæti.
Thelma náði bestum árangri allra í gólfæfingum og varð fyrst inn í úrslitin með 13.050 stig. Hún komst einnig í úrslit á slá þar sem hún fékk 12.350 stig.
Keppt er til úrslita á morgun og á sunnudaginn.