Elsa setti heimsmet og varð Evrópumeistari

Elsa Pálsdóttir.
Elsa Pálsdóttir. Ljósmynd/Kraft.is

Elsa Pálsdóttir setti heimsmet í réttstöðulyftu með 182,5 kg og varð Evrópumeistari í samanlögðum árangri í -84 kg flokki öldunga 60-69 ára á Evrópumótinu í kraftlyftingum í Pilsen í Tékklandi.

Elsa vann gull í réttstöðulyftu og hnébeygju með 160 kg lyftu, og hreppti síðan silfrið í bekkpressu með 77,5 kg. 

Pedro Oliviera tryggði brons er hann tók 262,5 kg í réttstöðulyftu í -83 kg flokki unglinga. Einar Rafn Magnússon fékk tvö brons í hnébeygju með 325 kg lyftu og réttstöðulyftu með 260 kg lyftu í -120 kg flokki unglinga. Einar fékk síðan silfur fyrir samanlagðan árangur.

Alex Cambray Orrason vann til silfurverðlauna er hann lyfti 357,5 kg í hnébeygju í -93 kg opnum flokki. 

Agnes Ýr Rósmundsdóttir hreppti þrjú bronsverðlaun á mótinu í bekkpressu, hnébeygju og samanlögðum árangri í +84 kg opnum flokki. Hún lyfti 132,5 kg í bekkpressu og tók 182,5 kg í réttstöðulyftu. 

Guðfinnur Snær Magnússon tók 420 kg í hnébeygju sem tryggði honum silfur í +120 kg flokki. Guðfinnur fékk síðan brons í bekkpressu en hann lyfti 310 kg. Fyrir samanlagðan árangur fékk Guðfinnur silfur.

Að lokum vann Sæmundur Guðmundsson gull í öllum greinum og í samanlögðum árangri í -83 kg flokki 70-79 ára. Sæmundur lyfti 160 kg í hnébeygju, 110 kg í bekkpressu og 190 kg í réttstöðulyftu.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert