Ju Jitsufélag Reykjavíkur náði frábærum árangri á IX Combat Ju-Jutsu Evrópumótinu sem fram fór í Tékklandi frá 10. til 12. maí.
Rúnar Páll Gígja, keppandi og þjálfari félagsins, tryggði sér silfurverðlaun í -93 kg flokki í Ground Combat eftir glæsilega sigra.
Í þriðju umferð sigraði hann Spánverjann Alberto Fidalgo með yfirburðum, 10:0, eftir að hafa áður mætt José Fernández frá sama landi.
Þetta er í fyrsta sinn sem íslenskur keppandi nær verðlaunasæti á Evrópumeistaramóti í þessari grein - og það aðeins nokkrum mánuðum eftir að félagið hóf þátttöku í alþjóðlegum keppnum.
Aðalþjálfari félagsins, Gilles Tasse, fékk 2. dan gráðu frá alþjóðasamtökunum (CJJIF) fyrir framúrskarandi framlag til kennslu, þjálfunar og uppbyggingar Ju-Jutsu á Íslandi.
Þetta er aðeins í annað skiptið sem félagið tekur þátt í alþjóðlegu móti eftir að hafa stigið sín fyrstu skref á heimsmeistaramótinu í Póllandi fyrir áramót.
Næsta alþjóðlega keppni verður heimsmeistaramótið í Póllandi í lok nóvember 2025. Undirbúningur er þegar hafinn og stefnt er að því að allt að 20 manna hópur fari til keppni samkvæmt fréttatilkynningu.
Á heimsmeistaramótinu verður tekið þátt í mörgum flokkum sem verður mikilvægur liður í áframhaldandi uppbyggingu íþróttarinnar hér á landi.