Vinkonur slógu draumahöggið á sömu brautinni

Golf er einföld íþrótt.
Golf er einföld íþrótt. mbl.is

June Wiener sem er 75 ára gömul og vinkona hennar Sue Baskind sem er 14 árum yngri gerðu sér lítið fyrir og fóru holu í höggi á sömu brautinni um s.l. helgi á Morr Allerton vellinum á Englandi. Líkurnar á því að tveir áhugakylfingar fari holu í höggi á sömu holunni er einn á móti milljón. Brautin er rétt um 140 metrar að lengt, par 3, og sagði Wiener að hún sæi mest eftir því að hafa ekki lagt eitt pund undir í veðbanka áður en þær hófu leik.

“Ég væri rík ef ég hefði lagt eitt pund undir að við færum holu í höggi á sömu brautinni en það sem gladdi okkur mest var að í ráshópnum voru tveir aðrir kylfingar. Annars hefði engin trúað okkur,” sagði Wiener.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert