Kristján lagði Sigurpál í 8-manna úrslitum á Urriðavelli

Sigurpáll Geir Sveinsson.
Sigurpáll Geir Sveinsson. mbl.is/seth@mbl.is/golf@mbl.is

Theodór Sölvi Blöndal, GO og Arnór Ingi Finnbjörnsson úr GR leika til undanúrslita á Íslandsmótinu í holukeppni á morgun á Urriðavelli. Í hinum undanúrslitaleiknum mætast Kristján Þór Einarsson, GKj. og Ottó Sigurðsson GKG. Ottó er sá eini af þeim sem leika í undanúrslitum sem hefur sigrað á Íslandsmótinu í holukeppni. Theodór vann Sigurð Pétursson í 8-manna úrslitum á 19. holu, Arnór vann Helga Ingimundarson 2/1, GR. Kristján Þór lagði liðsfélaga sinn Sigurpál Geir Sveinsson 1/0 og þau úrslit komu verulega á óvart. Ottó lék gegn Stefáni Má Stefánssyni úr GR í 8-manna úrslitum. Ottó tryggði sér sigur í bráðabana á 20. holur.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert