Opið hús í Básum

mbl.is

Á morgun, laugardag, gefst kylfingum tækifæri til þess að kynna sér æfingaaðstöðuna í Básum við Grafarholtsvöll. Þar verður boðið upp á golfkennslu og æfingabolta án endurgjalds og hefst dagskráin kl. 10 og er áætlað að henni ljúki kl. 16.

Mörg tilboð verða í gangi fyrir kylfinga sem hafa hug á því að æfa sig í vetur og einnig verður boðið upp á ýmsa leiki á svæðinu. Það er ProGolf sem stendur fyrir dagskránni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert