Birgir Björn í 10. sæti í Kansas

Birgir Björn Magnússon
Birgir Björn Magnússon mbl.is/Árni Sæberg

Birgir Björn Magnússon, klúbbmeistari GK, og Stefán Sigmundsson, GA, voru meðal keppenda í Central Kansas Classic-mótinu sem fór fram dagana 9.-10. október í bandaríska háskólagolfinu.

Birgir Björn endaði í 10. sæti í einstaklingskeppninni, en hann lék hringina tvo á 76 og 75 höggum og því samtals á 11 höggum yfir pari. Stefán lék báða hringina á 80 höggum og samtals á 20 höggum yfir pari og endaði í 31. sæti í einstaklingskeppninni.

Íslensku strákarnir leika báðir fyrir Bethany skólann sem endaði í öðru sæti í liðakeppninni af níu liðum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert