Flott endurkoma hjá Tiger

Tiger Woods fagnar fugli í kvöld.
Tiger Woods fagnar fugli í kvöld. AFP

Bandaríski kylfingurinn Tiger Woods átti góða endurkomu á golfvöllinn en hann lék fyrsta hringinn á Hero World Challenge mótinu á Bahamaeyjum í kvöld á þremur höggum undir pari.

Tiger hefur glímt við þrálát bakmeiðsli og er að keppa á sínu fyrsta móti í 10 mánuði. Hann lék hringinn á Bahamaeyjum á 69 höggum en þessi 41 árs gamli kylfingur, sem hefur á ferli sínum unnið 14 risamót, fékk fimm fugla og tvo skolla á fyrsta hringnum.

Tiger, sem hefur unnið 79 PGA mót, hefur ekki fagnað sigri á risamóti frá því hann bar sigur úr býtum á opna bandaríska meistaramótinu árið 2008 og hefur ekki unnið mót frá því hann fagnaði sigri á heimsbikarmótinu 2013.

Staðan á mótinu

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert