Góður hringur hjá Birgi Leifi

Birgir Leifur Hafþórsson.
Birgir Leifur Hafþórsson. mbl.is/Styrmir Kári

Birgir Leifur Hafþórsson átti flottan annan hring á PGA-meistaramótinu í golfi í Ástralíu í nótt að íslenskum tíma og komst í gegnum niðurskurð keppenda eftir 36 holur.

Birgir Leifur lék á 69 höggum eða þremur höggum undir pari en fyrsta hringinn lék hann á 74 höggum eða tveimur höggum yfir parinu.

Birgir Leifur var mjög stöðugur í spilamennsku sinni en hann fékk þrjá fugla og paraði fimmtán holur en fugl á 18. holunni tryggði honum áframhald. Hann er samtals einu höggi undir pari og þegar þetta er skrifað í 56. sæti og er öruggur áfram.

Ástralinn Marc Leishman er í forystunni en hann samtals sjö höggum undir pari. Spánverjinn Sergio Garcia sem lék fyrsta hringinn á 5 höggum undir pari náði sér ekki á strik á öðrum hringnum sem hann spilaði á 74 höggum eða tveimur höggum yfir pari.

Mótið  er hluti af Evrópumótaröðinni og er leikið á Royal Pines-vellinum. Mótið er sameiginlegt verkefni hjá Evrópumótaröðinni og PGA-atvinnumótaröðinni í Ástralíu.

Staðan á mótinu:

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert