Tiger Woods heldur áfram að spila vel á Hero World Challenge mótinu á Bahamaeyjum. Hann lék fyrsta hringinn í gær á 69 höggum eða þremur höggum undir pari og hann gerði gott betur í dag og lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari.
Woods lék sérstaklega vel á fyrri níu holunum og fékk þrjá fugla og einn örn. Á síðari níu fékk hann einn fugl og tvo skolla. Hann er því samanlagt á sjö höggum undir pari og í fimmta sæti, fimm höggum á eftir Charley Hoffman sem er efstur.
Tiger, sem hefur unnið 79 PGA mót, hefur ekki fagnað sigri á risamóti frá því hann bar sigur úr býtum á opna bandaríska meistaramótinu árið 2008 og hefur ekki unnið mót frá því hann fagnaði sigri á heimsbikarmótinu 2013.