Sigurður Arnar Garðarsson hafnaði í 16. sæti á Doral Publix Junior-golfmótinu sem fram fór í Flórída. Um er að ræða sterkt unglingamót þar sem margir efnilegir kylfingar tóku þátt.
Sigurður lék í flokki 14-15 ára ásamt tæplega 100 öðrum kylfingum. Hann lék hringina þrjá á 76, 74 og 79 höggum, samanlagt 16 höggum yfir pari. Tom Mckibbin frá frá Norður-Írlandi vann mótið á fjórum höggum undir pari.