Ólafía byrjar aftur á Bahamaeyjum

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, íþróttamaður ársins 2017.
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, íþróttamaður ársins 2017. mbl.is/Kristinn Magnússon

Íþróttamaður ársins 2017, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur, mun hefja keppnistímabilið á bandarísku LPGA-mótaröðinni á sama stað og í fyrra eða á Bahamaeyjum. Pure Silk-mótið verður eins og í fyrra fyrsta mótið á keppnistímabilinu og þar ætlar Ólafía Þórunn að vera með en hún getur nú valið sér mót á mótaröðinni vegna góðs árangurs á árinu 2017.

Mótið verður haldið dagana 25. - 28. janúar á Paradise Island. Eru því enn um þrjár vikur þar til Ólafía keppir á nýjan leik eftir vetrarfríið. Ólafía komst í gegnum niðurskurð keppenda í þessari frumraun sinni á LPGA í fyrra og lék samtals á fimm höggum undir pari. Lék hún hringina fjóra á 71, 68, 77 og 71 höggi.

Ekki liggur fyrir hvaða mót Ólafía mun velja í framhaldinu en þó er ljóst að hún mun keppa á fyrsta risamóti ársins, ANA-meistaramótinu, í Kaliforníu í lok mars. Ólafía er þegar komin með keppnisrétt á tveimur risamótum vegna árangurs síns 2017. Hitt mótið sem um ræðir er Opna bandaríska meistaramótið. Mun hún væntanlega leggja allt kapp á að vera komin í góða leikæfingu þegar ANA-mótið brestur á enda er til mikils að vinna á risamótunum. 

Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert